„Einkadans“ bannaður frá 1. júlí
Rúv.is: Einkadans verður bannaður með nýjum lögum um skemmtistaði sem taka
gildi 1. júlí. Bannið bakar ríkinu ekki skaðabótaskyldu að mati Atla
Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna.
Í lögum um veitingastaði,
gististaði og skemmtanahald sem taka gildi 1. júlí er kveðið á um bann
við nektarsýningum og einkadansi. Meginregla greinarinnar er að hvorki
sé heimilt að bjóða upp á nektarsýningar á skemmti- og veitingastöðum
né með öðrum hætti gera út á nekt starfsmanna eða annarra sem þar eru.
Á þessu er undantekning þar sem segir að nektardans í atvinnuskyni sé
heimill á veitingastað að fengnum jákvæðum umsögnum sveitarstjórnar,
heilbrigðisnefndar, slökkviliðs, byggingarfulltrúa og lögreglu.
Þar
sem undanþága til nektardanssýninga verður veitt, verður dansara
óheimilt að fara um meðal gesta og áhorfenda og hverskonar
einkasýningar verða bannaðar. Af þessu má skilja að einkadans verði með
öllu óheimill frá fyrsta júlí. Bannið bakar ríkinu ekki skaðabótaskyldu
að mati Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna. Hann segir að lögin
gangi lengra en einhverjar lögreglusamþykktir.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.