Sus ályktar um forræðishyggju stjórnvalda

Mbl.is: Samband ungra sjálfstæðismanna hefur sent frá sér
ályktun þar sem segir að sá atburður sem varð í Reykjavík um síðustu
helgi, þegar lögregla stöðvaði með valdi spilakeppni, sýni að þörf er á
því að fjarlægja úr íslenskum lögum heimildir stjórnvalda til þess að
hafa afskipti af einstaklingum sem stunda starfsemi eða afþreyingu sem
sé öðrum skaðlaus, jafnvel þótt einhverjum kunni að þykja hún
siðferðislega ámælisverð.
„Undanfarið hefur
þeirrar tilhneigingar orðið mjög vart að stjórnvöld á Íslandi beiti
valdi sínu til að þvinga siðferðismat sitt upp á samfélagið.
Borgarstjórn Reykjavíkur beitti valdi sínu til þess að fæla löglega
spilastarfsemi frá fyrirhuguðu starfssvæði, Alþingi hefur sett
ofstækisfull lög sem leggja sektir við því að veitingahúsaeigendur
leyfi gestum sínum að reykja innandyra; og nú síðast greip lögregla til
aðgerða gegn hópi manna sem sat og spilaði á spil gegn þátttökugjaldi,"
segir í ályktun SUS.
Þar segir að íslenskir
stjórnmálamenn hafi borið gæfu til þess að draga smám saman úr valdi
sínu í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum og þessi þróun hafi
reynst ákaflega happadrjúg. Eitt mikilvægasta verkefni löggjafans nú um
stundir sé að vinda ofan af forneskjulegri forræðishyggju sem víða sé
til staðar í íslenskum lögum.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.