Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Samkomulag milli Þjóðverja og Pólverja

22. júní 2007

Mbl.is: Samkomulag hefur náðst milli Þjóðverja og Pólverja
um orðalag í nýjum sáttmála, sem á að koma í stað fyrirhugaðrar
stjórnarskrár Evrópusambandsins. AFP fréttastofan hefur eftir
embættismanni Evrópusambandsins, að samkomulagið sé ekki endanlegt
vegna þess að Lech Kaczynski, forseti Póllands, eigi eftir að bera það
undir Jaroslaw Kaczynski, forsætisráðherra og tvíburabróður sinn.

Stífar
viðræður hafa verið í dag milli Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og
Lechs Kaczynzkis og hafa Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, og Valdas
Adamkus, forseti Litháens, einnig tekið þátt í viðræðunum en Adamkus
talar pólsku reiprennandi. Gert er ráð fyrir að leiðtogarnir fjórir
hittist innan skamms á fundi til að ganga endanlega frá samkomulaginu.

Þá
eru leiðtogar ESB-ríkjanna einnig sagðir hafa náð samkomulagi um
fyrirkomulag embættis yfirmanns utanríkismála ESB. Í drögum að
sáttmálanum er fjallað um utanríkisráðherra sambandsins en
embættisheitinu hefur verið breytt í utanríkismálafulltrúa ESB.

Pólsk
stjórnvöld hótuðu því að beita neitunarvaldi gegn nýja sáttmálanum á
leiðtogafundi ESB, sem nú stendur yfir. Pólverjar voru mótfallnir
fyrirliggjandi hugmyndum um atkvæðavægi einstakra ríkja innan ESB, sem
þeir segja stórum löndum eins og Þýskalandi í hag. Þeir hafa vísað til
þess, að íbúar Póllands væru mun fleiri í dag ef ekki hefðu komið til
hörmungar seinni heimsstyrjaldar og vilja að tekið sé tillit til
þessarar staðreyndar.

Lausnin, sem nú hefur
fundist, felst í því að lítill hópur ESB-ríkja, sem saman ráði næstum
yfir nógu mörgum atkvæðum til að stöðva tillögur, geti krafist þess að
viðkomandi tillaga verði endurskoðuð. Þá er gert ráð fyrir því að nýjar
reglur um atkvæðavægi taki gildi árið 2014 en ekki 2009.

Pólverjar hafa einnig krafist þess, að vísan til fjölskyldigilda verði sett inn í nýja sáttmálann.

Bretar
hafa gert athugasemdir við drög að sáttmálanum á þeirri forsendu, að
þeir vilji ekki afsala sér frekara valdi til Brussel. Tony Blair,
forsætisráðherra Breta, sagði nú síðdegis, að talsverður árangur hefði
náðst í þessum málum. Hann viðurkenndi þó, að Bretar hefðu gefið eftir
gagnvart Frökkum varðandi samkeppnismál en orðalag um að
Evrópusambandið vildi koma á óbrenglaðri samkeppni var fjarlægt úr
greinargerð með sáttmálanum.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.