Launamunur kynjanna fer minnkandi
Rúv.is: Ný rannsókn sem kynnt var í dag sýnir að launamunur karla og kvenna
mælist 10-12%. Rannsóknin nær ekki til ábyrgðar, frammistöðu eða
fjölskylduaðstæðna. Samkvæmt könnuninni er óskýrður launamunur kynjanna
nokkru minni en í mörgum nýlegum rannsóknum hérlendis. Hannes G.
Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir
mikilvægt að gæta ákvæða jafnréttislaga.
Rannsóknin sem unnin er í
samstarfi , ParX, Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Samtaka
atvinnulífsins, byggir á gögnum úr launabókhaldi 102 fyrirtækja og nær
til rúmlega 6.300 starfsmanna. Fyrirtækin starfa í ýmsum atvinnugreinum
og nær öll einkarekin. Hlutfallslega margir þeirra sem rannsóknin nær
til eru með háskólapróf. Rannsóknin sýnir að 10-12% munur er á föstum
mánaðarlaunum karla og kvenna, verður ekki skýrður með öðru en kyni.
Föst mánaðarlaun kvenna voru að meðaltali 18% lægri en karla á síðasta
ári. Þar af eru 6-8% skýrð með mun á menntun kynjanna, starfi, aldri
eða starfsaldri.
launamunur kynjanna sé nokkru minni en í mörgum nýlegum rannsóknum
hérlendis og má meðal annars rekja muninn til nákvæmrar starfaflokkunar
og upplýsinga um menntun starfsmanna í þessari rannsókn.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.