Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Bandaríkin og Ísrael lofa Abbas aðstoð

19. júní 2007

Vísir.is: George Bush segist ætla að hjálpa Mahmoud Abbas, ásamt Ísrael, í
baráttunni gegn Hamas samtökunum sem nú stjórna Gaza svæðinu. „Við
vonumst til að Abbas verði styrktur svo að hann geti leitt Palestínu í
aðra átt," sagði Bush í byrjun fundar með forsætisráðherra Ísrael, Ehud
Olmert. Vestrænir leiðtogar hafa stillt sér við bak Abbas með loforðum
um aukna hjálp, í von um að koma í veg ofbeldisfulla yfirtöku Hamas og
koma á friði á milli Ísrael og Palestínu. „Við deilum þeirri hugsjón að
við viljum sjá þessi ríki lifa hlið við hlið í sátt og samlyndi, og
berjast gegn öfgasinnum á Gaza svæðinu.

Bandaríkin
og Evrópusambandið ákváðu í gær að hjálpa Palestínu með fjármagni eftir
að Hamas unnu kosningarnar í fyrra og neituðu svo að viðurkenna Ísrael
og upphófu ofbeldi.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.