Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Gott ástand öryggismála hjá dagforeldrum í Garðabæ

19. júní 2007

Mbl.is: Nýleg úttekt sem gerð var á öryggismálum hjá
dagforeldrum í Garðabæ sýnir að ástand öryggismála hjá þeim er almennt
gott að því er kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ. Starfsmenn
Forvarnahúss
Sjóvá gerðu úttektina að beiðni bæjarráðs Garðabæjar en tíu
dagforeldrar eru nú starfandi í bænum og er þörf á fleirum fyrir næsta
vetur.

Bæjarráð samþykkti að láta taka öryggismálin út í kjölfar ákvörðunar sinnar
um að veita starfandi dagforeldrum í bænum aðstöðustyrk, sem m.a. er ætlaður
til að bæta umhverfi og aðstöðu barnanna sem hjá þeim dvelja.

Almenn niðurstaða skoðunarinnar var sú, að ástand öryggismála hjá dagforeldrum sé
gott. Mikill metnaður sé lagður í starfið og áhugi fyrir því að gera vel.
Engar athugasemdir voru gerðar sem kröfðust tafarlausra útbóta, en fram
komu nokkrar minniháttar ábendingar sem unnt er að bregðast við með
einföldum hætti.

Í úttektinni voru meðal annars skoðuð eftirtalin atriði: Aðkoma foreldra og
barna gangandi og akandi að daggæsluheimili, aðstaða á lóð, hvíldarsvæði
barna (hvar þau sofa), vagnar, leiksvæði innanhúss og leikföng,
eldhús/matsvæði, baðherbergi/skiptiaðstaða, eldvarnir og þekking á notkun
búnaðar, yfirferð á neyðaráætlun o.fl.

Garðabær segir, að í kjölfar úttektarinnar verði unninn gátlisti fyrir heimili dagforeldra,
slysaskráningarblað fyrir dagforeldra og gátlisti fyrir sjúkrakassa auk
þess sem útbúin verði viðbragðsáætlun fyrir öll heimili dagforeldra í
Garðabæ.

Fjóla Guðjónsdóttir og Herdís L.
Storgaard, starfsmenn Sjóvár Forvarvarnahúss, gerðu úttektina í apríl en fyrir hönd Garðabæjar var
viðstödd úttektina Hulda Ósk Gränz daggæslufulltrúi Garðabæjar.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.