Fréttir
Hanna Birna endurkjörinn forseti borgarstjórnar

Mbl.is: Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem í dag var einróma
kjörin forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, segir að sér þyki mjög vænt
um að hafa hlotið þennan stuðning, sem hún kveðst telja að megi rekja
til þess góða starfsanda er verið hafi í borgarstjórn á undanförnu ári.
Hanna Birna er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Samkvæmt
upplýsingum frá skrifstofu borgarstjóra mun þetta vera í annað skipti í
sögu borgarstjórnar sem forseti borgarstjórnar er kjörinn með atkvæðum
allra borgarfulltrúa. Þetta gerðist áður árið 2004, þegar Árni Þór
Sigurðsson, þáverandi borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, var
endurkjörinn forseti borgarstjórnar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.