Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Salman Rushdie hlýtur aðalstign

16. júní 2007

Mbl.is: Rithöfundurinn Salman Rushdie, sem lifði í felum um
árabil eftir morðhótanir frá múslimum, var aðlaður af
Bretlandsdrottningu í dag. Bók hans Söngvar Satans móðgaði múslima víða
um heim og í kjölfarið var sett lausnargjald til höfuðs honum árið 1989.

Frá
því að hinn indversk ættaði rithöfundur snéri aftur á sjónarsviðið árið
1999 hefur hann ekki síður verið umdeildur. Hann er einlægur
efahyggjumaður og studdi m.a. athugasemdir leiðtogans Jack Straw um
klæðaburð múslímskra kvenna og hefur varað við alræðishyggju Íslam.

Rushdie
fæddist í Mumbai árið 1947 og er sonur farsæls viðskiptamanns. Hann er
menntaður á Englandi og las sögu við háskólann í Cambridge.

Fyrsta
bók Rushdie frá árinu 1975, Grimus, var ekki vel tekið, en önnur bók
hans, Miðnæturbörn, sló í gegn. Það var fjórða bókin hans, Söngvar
Satans, sem var fordæmd í hinum íslamska heimi og varð til þess að
Ayatollah Khomeini, erkiklerkur Írans, fyrirskipaði að Rushdie skyldi
líflátinn árið 1989. Árið 1998 lýsti ríkisstjórn Íran því yfir að hún
ætlaði ekki að framfylgja dómnum.

Sir Rushdie
sagðist hæstánægður og auðmjúkur gagnvart heiðrinum sem honum væri
sýndur og þakklátur fyrir að verk hans væru viðurkennd á þennan hátt.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.