Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Ríkistekjur hækka um 40 milljarða

10. október 2006

Ruv.is: Tekjur ríkisins verður rúmlega 40 miljörðum hærri en reiknað var með í fjárlögum samkvæmt endurskoðaðri afkomuáætlun ríkisins. Mikil efnahagsumsvif og skattar sem þeim fylgja skýra þetta.

Áætlað er að tekur ríkisins verði ríflega 40 milljörðum hærri en áætlað var í fjárlögum. Gjöld verði 11 miljörðum hærri. Umsvif hafa verið meiri en búist var við og skattar því hærri líka. Árni Matthíesen fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi til fjáraukalaga á Alþingi í dag.

Tekjuafgangur ríkisins er áætlaður 49 miljarðar króna á árinu 2006 í stað 19,6 miljarða, samkvæmt endurskoðaðri áætlun um afkomu árið 2006. Fjármálaráðherra segir meginskýringu á auknum heildartekjum ríkisins vera þá að efnahagsumsvif hafi verið meiri en ráð var fyrir gert bæði í fyrra og á þessu ári. Fjármálaráðherra segir að tekjuafgangurinn verði notaður til að bæta stöðu ríkissjóðs og bæta stöðuna gagnvart Seðlabankanum.

En það kenndi margra grasa í umræðunni um fjáraukalögin því þar koma fram ýmsar beiðnir um framlög til verkefna sem þóttu misnauðsynleg. Þingmenn stjórnarandstöðu höfðu margt að athuga við framlög í þágu íslenska hestsins og sagði Jón Gunnarsson hrossin í forgangi miðað við sjúka og aldraða, börn og fólk yfirleitt. En í fjáraukalögum er farið fram á 330 miljónir svo byggja megi reiðhallir, skála og skemmur í samvinnu við hestamannafélög og sveitarfélög. Var ráðherra talinn undir áhrifum af því að hvar hann væri að fara í framboð. Árni sagði gott veganesti fyrir sig ef þingmenn telji að hann stæði fyrir góðum hlutum í landbúnaði og hestamennsku.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.