Ísrael: Shimon Peres kjörinn forseti

Rúv.is: Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, var í dag kjörinn
forseti landsins. 86 þingmenn Knesset, ísraelska þingsins, greiddu
Peres atkvæði í síðari umferð kosninganna eftir að tveir keppinautar
hans drógu sig í hlé og lýstu yfir stuðningi við hann.
Peres er
orðinn 83 ára. Hann hefur þar með gegnt öllum æðstu pólitísku
embættunum í Ísrael á sex áratuga stjórnmálaferli. Peres sagði í ávarpi
til þingmanna Knesset eftir kjörið að hann ætlaði að vera
sameiningartákn ísraelsku þjóðarinnar og lofaði að leggja allt í
sölurnar til að það mætti takast. Þrátt fyrir að Shimon Peres hafi
hafist til æðstu metorða í Ísrael er hann eigi að síður þekktur fyrir
að vegna illa í kosningum. Fyrir sjö árum tapaði hann t.d. fyrir
Likudmanninum Moshe Katsav í baráttunni um forsetaembættið. Þau úrslit
þóttu með ólíkindum.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.