Abbas kallar ástandið á Gaza vitfirringu

Rúv.is: Að minnsta kosti 27 hafa fallið í bardögum liðsmanna
Hamas-samtakanna og Fatah á Gaza-ströndinni í dag. 70 hafa fallið þar
undanfarna fjóra daga. Abbas, forseti Palestínumanna, segir hrun blasa
við takist ekki að binda enda á átökin. Abbas sagði í dag að það sem
væri að gerast á Gaza væri vitfirring. Ef ekki tækist að koma á
vopnahléi færi ástandið úr böndunum.
Harðir bardagar hafa
geisað víðsvegar á Gaza-ströndinni í dag og virðast Hamas-menn hafa
betur. Hernaðararmur Hamas gaf í dag liðsmönnum Fatah-frest fram á
föstudag til að leggja niður vopn, að öðrum kosti yrði þeir afvopnaðir
með valdi. Nokkru síðar tilkynnti formælandi Hamas að samtökin væru
reiðubúin til að semja um vopnahlé gegn því að innanríkisráðherra
palestínsku heimastjórnarinnar tæki við yfirstjórn allra öryggissveita
á Gaza en Ismail hanyeh, forsætisráðherra heimastjórnarinnar og einn
forystumanna Hamas, gegnir nú einnig embætti innanríkisráðherra.
Formælandinn sagði að egypskir milligöngumenn ætluðu að kynna Abbas
forseta þau skilyrði sem Hamas setti og niðurstaðan réðst af viðbrögðum
hans.
Mustafa Barghouti, ráðherra í heimastjórn Palestínumanna,
sagði í dag að bardagar stríðandi fylkinga endurspegluðu þá fátækt,
örvæntingu og vonleysi sem ríkti á heimastjórnarsvæðunum. Barghouti
segir að það sé skylda Palestínumanna að standa vörð um heimastjórnina
og koma í veg fyrir að framtíð palestínsku þjóðarinnar verði lögð í
rúst. Franska stjórnin hvatti í dag Evrópusambandsríki til að hefja á
ný beina efnahagsaðstoð við palestínsku heimastjórnina en slíkri aðstoð
var hætt þegar Hamas-samtökin komust til valda í fyrra. Formælandi
franska utanríkisráðuneytisins sagði að stuðningur við hófsamari öfl
Palestínumanna og friður og stöðugleiki á heimastjórnarsvæðunum væri í
húfi.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.