Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Alþingi: Sumarþingi slitið

13. júní 2007

Rúv.is: Fundum Alþingis var í dag frestað til 1.
október. Forseti Alþingis boðar bætta aðstöðu þingmanna og starfshætti
Alþingis. Halldór Blöndal var kosinn formaður bankaráðs Seðlabankans.

134.
löggjafarþingi Alþingis var frestað í dag til 1. október næstkomandi.
Átta lög voru samþykkt á þessu þingi og tvær þingsályktunartillögur.

Á
síðasta fundi sínum í dag samþykkti Alþingi frumvarp um
almannatryggingar, um verðbréfaviðskipti, kauphallir og
fjármálafyrirtæki, um viðaukasamning um álbræðslu við Straumsvík og um
stjórnarráð Íslands en stjórnarandstaðan lagðist gegn því frumvarpi. A

lþingi
kaus einnig í landskjörstjórn, yfirkjörstjórnir í hverju kjördæmi og í
bankaráð Seðlabanka Íslands. Fjórir bankaráðsmenn sitja áfram en þrír
nýir voru kosnir, Halldór Blöndal, sem verður formaður bankaráðsins,
Erna Gísladóttir og Jón Sigurðsson.

Við þingfrestun boðaði
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, breytta starfshætti Alþingis
-tillögur þess efnis mun hann móta í sumar í samstarfi við ríkisstjórn
og formenn þingflokka.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.