Árni H. ráðinn framkvæmdastjóri þingflokks XD
Sus.is: Árni Helgason hefur tekið við sem framkvæmdastjóri þingflokks
sjálfstæðismanna. Þetta var ákveðið á stjórn þingflokksins í gærmorgun
og var staðfest á fundi þingflokks síðar sama dag. Árni tekur við
embætti framkvæmdastjóra af Grétu Ingþórsdóttur, sem hefur gegnt því
starfi í átta ár. Gréta hefur nú verið ráðin aðstoðarmaður Geirs H.
Haarde, forsætisráðherra.
Árni starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu frá árinu 2003 til áramóta
2007. Árni er 25 ára gamall laganemi við Háskóla Íslands.
Hann lauk BA-gráðu í lögfræði frá skólanum árið 2005 og stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2001. Hann er varaformaður
Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík og sat í
Stúdentaráði Háskóla Íslands fyrir hönd Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta 2004-2006.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.