Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Birtíngur: Áfengislögin gölluđ

9. júní 2007

Rúv.is: Ásmundur Helgason, markađsstjóri Birtíngs,
segir áfengislögin gölluđ og spyr hvers vegna Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins sé frjáls ađ auglýsa, bćđi á Netinu auk ţess sem ÁTVR gefi út
bćklinga um áfengi í 15.000 eintökum. Ásmundur segir ađ Birtíngur ćtli
ekki ađ breyta stefnu sinni um áfengisauglýsingar í tímaritum félagsins.

Karl
Garđarsson, fyrrverandi ritstjóri Blađsins, hefur í hérađsdómi veriđ
dćmdur til ađ greiđa eina miljón króna í sekt vegna áfengisauglýsinga
sem birtust í blađinu í hittiđfyrra. Karl ćtlar ekki ađ una dóminum,
hyggst áfrýja honum til Hćstaréttar. Útgáfufélagiđ Birtíngur er
sjálfsagt stćrsta tímaritaútgáfa landsins og gefur út átta tímarit, ţar
á međal Ísafold, Mannlíf, Gestgjafann og fleiri. Fjallađ er um áfengi í
ţessum tímaritum, međ ýmsum hćtti.

Ásmundur Helgason segir
dóminn athyglisverđan fyrir nokkrar sakir. Hann bendir á ađ
umbođsađilar áfengisins sem um rćđir í dómnum hafi hvorki veriđ dćmdir
né kallađir til yfirheyrslu vegna málsins og ţví löngu tímabćrt ađ
endurskođa lögin. Ásmundur segir jafnframt ađ ađalsamkeppnisađilar
Birtíngs séu erlend tímarit og ađ í ţeim megi sjá fjölda
áfengisauglýsinga. Ţá segir hann ţađ tvískinnung hjá íslenska ríkinu ađ
banna fjölmiđlum ađ auglýsa áfengi en geri ţađ sjálft međ ţví t.d. ađ
gefa út bćkling í 15.000 eintökum og auglýsa spćnska daga.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.