Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Ísrael: Olmert býður Gólanhæðir fyrir frið

9. júní 2007

Rúv.is: Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur boðist til að skila
Sýrlendingum Gólanhæðum, sem Ísraelar hernámu fyrir 40 árum, gegn því
að ráðamenn í Damaskus undirriti friðarsáttmála, láti af stuðningi við
Hísbollahhreyfinguna í Líbanon og herská samtök Palestínumanna.

Fjölmiðlar
í Ísrael staðhæfðu þetta í gærkvöld. Haft er eftir Meir Sjetrit,
ráðherra í Ísraelsstjórn, að hugmyndir Olmerts feli í sér að Gólanhæðum
verði skilað í áföngum, Sýrlendingar verði þar allsráðandi eftir
aldarfjórðung.

Fjölmiðlarnir segja Olmert hafa sent ráðamönnum
í Damaskus orðsendingar og friðarboð, þýskir og tyrkneskir
stjórnarerindrekar hafi komið þeim til skila. Markmið Olmerts sé ekki
aðeins að semja frið við Sýrlendinga en formlega eiga þeir enn í stríði
við Ísraela. Olmert vilji ekki síður reyna að spilla vináttu
Sýrlendinga og Írana, Sýrlendinga og Hísbollahhreyfingarinnar og
Sýrlendinga og Hamassamtakanna. Talið er að forsætisráðherrann hafi
rætt áætlun sína við George Bush Bandaríkjaforseta og sannfært hann um
ágæti hennar.

Olmert nýtur lítilla vinsælda á heimaslóð eftir
mannskæða innrás Ísraelshers í Líbanon í fyrrasumar. Vonar hann að
ranhæfar tillögur um að semja frið við Sýrlendinga bæti úr því.
Opinberar friðarviðræður Ísraela og Sýrlendinga stóðu árum saman uns
uppúr þeim slitnaði árið 2000.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.