Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Engin húðflúr eða stóra rassa

9. júní 2007

Mbl.is: Þær konur sem hyggjast starfa við að afhenda
verðlaunapeninga á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári verða að lúta
ákveðnum reglum, og þar á meðal er það sett sem skilyrði að þær séu
ekki með húðflúr, áberandi eyrnalokka eða stóran afturenda. Frá þessu
er greint í Beijing News sem hefur þetta eftir umsjónarmönnum
verðlaunaafhendingarinnar. Þar segir einnig að 208 konur verði valdar í
prufur sem fara munu fram seinna á þessu ári. Lokavalið verður svo
stuttu fyrir leikana sem eru í ágúst 2008.

„Við
viljum ekki konur sem líta óíþróttamannslega út því það hefur neikvæð
áhrif á íþróttafólkið,“ sagði Li Ning sem hefur yfirumsjón með vali á
konunum. „Beinabygging og hæð kvennanna þarf að vera svipuð og við
viljum ekki sjá neina breiða rassa,“ bætti hann við.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.