Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Þrælum komið til bjargar í Kína

9. júní 2007

Mbl.is: Þrjátíu og einum verkamanni hefur verið komið til
bjargar en mennirnir störfuðu hjá fyrirtæki sem framleiðir múrsteina í
Kína. Mennirnir, sem voru skítugir og ringlaðir, var haldið sem þrælum
hjá fyrirtækinu segir á fréttavef BBC.

Átta verkamenn voru svo illa á sig komnir andlega eftir raunir sínar að þeir gátu aðeins munað nöfnin sín.

Verkamennirnir
voru neyddir til að vinna frá kl. fimm á morgnanna til kl. eitt á
nóttunni. Þeim voru ekki greidd laun heldur fengu þeir aðeins vatn og
brauð fyrir stritið.

Fyrirtækið, sem er staðsett í fátækum hluta Shanxi-héraðsins, er í eigu sonar eins af riturum Kommúnistaflokksins í héraðinu.

Lögreglan
sagði í samtali við BBC að eigandinn, Wang Binbin, hafi verið
handtekinn og að verið væri að yfirheyra föður hans, Wang Dongji,

Þá hafa nokkrir til viðbótar verið handteknir. Verkstjórinn lagði hinsvegar á flótta og er hans leitað.

Samkvæmt
frétt sem birtist í dagblaðinu Beijing News, þar sem vísað er í Shanxi
Evening News, höfðu mennirnir verið plataðir til þess að vinna hjá
verksmiðjunni.

Þegar þeir komu þangað beið
þeirra mikið harðræði. Greint var frá því að einn starfsmaðurinn hafi
verið barinn til dauða með hamri fyrir það eitt að hafa ekki unnið
nægilega hratt.

Þegar lögreglan kom á vettvang fundu þeir illa lyktandi verkamenn sem höfðu verið í sömu fötunum í eitt ár.

Þeir höfðu ekki baðað sig, klippt á sér hárið eða burstað í sér tennurnar.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.