Mótmæla því að hærri lán Íbúðalánasjóðs hafi aukið

Mbl.is: Stjórnendur Íbúðalánasjóðs hafa sent frá sér
athugasemd vegna umfjöllunar um málefni sjóðsins að undanförnu. Þar
kemur fram að breyting á hámarksláni og lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs
hefur ekki valdið mikilli aukningu á verðbólgu.
„Í
umræðum um efnahagsmál undanfarna daga hefur því verið haldið fram að
starfsemi og ákvarðanir Íbúðalánasjóðs séu í andstöðu við stefnu
stjórnvalda og “skaðvaldur á íbúðalánamarkaðinum”. Ákvörðun stjórnvalda
um breytingu á hámarksláni og lánshlutfalli sjóðsins var
stjórnvaldsaðgerð en ekki framkvæmd af sjóðnum einhliða. Öll starfsemi
hans byggir á ákvæðum laga og reglugerða.
Það er
því ekki rétt sem haldið hefur verið fram að Íbúðalánasjóður hafi haft
ákveðna forystu í að auka verðbólgu og vinni gegn stefnu stjórnvalda,"
að því er segir í athugasemd frá Íbúðalánasjóði.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.