Davíð segir gagnrýni SA ekki trúverðuga

Mbl.is: Davíð Oddsson, seðlabankastjóri fagnar því að
Seðlabankinn fái gagnrýni, enda sé það sérhverri stofnun bæði hollt og
gott. „Hitt er annað mál að það er ekki mjög trúverðugt að halda því
fram að vaxtastefnan hafi engin áhrif og jafnframt kvarta yfir því að
vextirnir séu farnir að bíta,“ segir Davíð um en Samtök atvinnulífsins
gagnrýndu bankann harðlega í gær fyrir háa stýrivexti.
Að
sögn Davðiðs eru hinir háu vextir eðli máls sakvæmt notaðir í því
augnmiði að þrýsta verðbólgu niður á nýjan leik. „Verðbólgan var komin
í tæplega 8%, en er núna komin í 4,5 %, þótt undirliggjandi verðbólga
sé enn mikil.“
Davíð segir að háir vextir hafi
áhrif í þá átt að styrkja stöðu gengisins og það geti haft áhrif á
marga, sérstaklega útflutningsatvinnugreinarnar. Hins vegar sé verð á
útflutningsafurðum mjög hátt eins og sakir standi, til dæmis
heimsmarkaðsverð áls, og því hafi gengið ágætlega fyrir
útflutningsgreinarnar að kljást við hátt gengi.
Davíð
kveður það mjög ofmælt að bankinn sé fastur í vítahring stýrivaxta eins
og SA segi, þvert á móti séu vaxtaákvarðanir bankans farnar að hafa
áhrif og verðbólgan er á niðurleið, þótt undirliggjandi verðbólga sé
enn veruleg. „Þess vegna eru menn farnir að viðurkenna það, annars
staðar en bara hér, að okkar sjónarmið hafi verið rétt og að vextir
þurfi að vera heldur hærri, heldur lengur en flestir höfðu spáð.“
Davíð
segir það rétt hjá Samtökum atvinnulífsins að aðgerðir ríkisins í
marsmánuði hafi verið mjög óheppilegar en þá var lánshlutfall
Íbúðarlánasjóðs hækkað á ný.
„Það er gríðarleg
eftirspurn og pressa í þjóðfélaginu enn þá og þessi aðgerð var til þess
fallin að ýta undir þá pressu sem verið hefur, sérstaklega á
fasteignamarkaðinum. Þannig að þetta voru ekki skynsamleg viðbrögð,“
segir hann.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.