Ingibjörg Sólrún vill heimsækja Miðausturlönd

Mbl.is: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði í umræðum á
Alþingi í dag að mikilvægt væri að
íslensk stjórnvöld kæmu á eðlilegum
samskiptum við þjóðstjórn Palestínumanna. Hún sagði jafnframt að
hún hygðist eiga samstarf við Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs,
um það hvernig Íslendingar gætu komið að málefnum
svæðisins.
„Ég vil líka að það komi
fram hér að ég stefni á að heimsækja
svæðið til að athuga hvernig við getum beitt okkur betur þar. Við viljum
leggja okkar lóð á vogarskálarnar
fyrir betra ástandi á þessum slóðum
og í þágu friðar og mannréttinda á
þessu svæði.“
Tilefni
umræðnanna var tillaga
þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um að
ríkisstjórninni yrði falið að viðurkenna þjóðstjórn Palestínumanna og
taka upp
við hana eðlileg samskipti.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.