Huginn - félag ungra sjálfstćđismanna í Garđabć
Fréttir

Forsvarsmenn NATO gagnrýna yfirlýsingar Pútíns

4. júní 2007

Mbl.is: Talsmađur Atlantshafbandalagsins NATO segja hótanir
Vladímírs Pútíns, Rússlandsforseta um ađ Rússar muni beina eldflaugum
sínum ađ Evrópu komi Bandaríkin upp eldflaugavarnakerfi ţar hvorki
hjálplegar né til ţess fallnar ađ stuđla ađ trausti á milli Rússa og
annarra Evrópuţjóđa. Ţetta kemur fram á fréttavef BBC.

„Ađ
mínu viti eru Rússar eina ţjóđin sem lćtur sér detta í hug ađ beina
eldflaugum ađ Evrópu,” segir James Appathurai, talsmađur NATO. „Svona
yfirlýsingar eru hvorki velkomnar né hjálplegar.

Bandarískir
ráđamenn segjast vilja koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og
Tékklandi til ađ verja Bandaríkin hugsanlegum árásum Írana og
Norđur-Kóreumanna en Pútín dró ţetta í efa í rćđu sem hann flutti í gćr
og sagđi Bandaríkjunum ekki stafa nokkur hćtta af Írönum.

Nicolas
Sarkozy, forseti Frakklands, mun hitta Pútín á leiđtogafundi G-8
ríkjanna síđar í ţessari viku og segist hann ćtla ađ rćđa máliđ viđ
hann af hreinskilni. „Ég mun hlusta á ţađ sem hann hefur ađ segja. Hann
hefur hvatt til hreinskilinna viđrćđna og ađ minni hálfu munu ţćr vera
mjög hreinskilnar,” segir hann.

Fréttabréf

Fáđu tilkynningar um atburđi og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.