Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Minnismerki um samkynhneigð fórnarlömb nasista

4. júní 2007

Mbl.is: Minnismerki um samkynhneigða sem voru pyntaðir og
drepnir á tímum nasista í Þýskalandi verður reist síðar á árinu í
Berlín. Þetta tilkynntu þýsk stjórnvöld í dag. Upphaflega átti það að
sýna tvo karlmenn kyssast en hætt var við það vegna mótmæla lesbía.

Þrjú
og hálft ár eru frá því þýska þingið samþykkti byggingu minnismerkisins
og verður það staðsett við útjaðar Tiergarten garðsins í Berlín, sem er
ekki fjarri minnismerki um 6 milljónir gyðinga sem létu lífið í
Helförinni. Dani og Norðmaður hanna minnismerkið og verður það mótað
eins og grá steinsteypt hella, með glugga sem gestir geta kíkt í gegnum
og séð skjá með mynd á. Upphaflega átti að sýna videó af tveimur mönnum
sem kyssast en því mótmæltu lesbíur.



Karla-og konukoss


Nú hefur Bernd Neumann,ráðherra menningarmála í Þýskalandi, lýst því
yfir að á tveggja ára fresti verði skipt um videó í minnismerkinu og
sýndur verður karlakoss í tvö ár og konukoss í tvö ár.

Nasistar
lýstu samkynhneigð sem skekkju sem ógnaði þýska kynstofninum og dæmdu
um 50 þúsund homma sem glæpamenn. Áætlað er að um 10-15 þúsund
samkynhneigðir karlmenn hafi verið fluttir í einangrunarbúðir og fáir
þeirra hafi lifað dvölina af. Fáir samkynhneigðir karlmenn stigu fram
eftir seinni heimsstyrjöldina vegna þess að fordómar gegn þeim héldu
áfram og lög sem notuð voru gegn þeim voru við lýði í Vestur-Þýskalandi
allt til ársins 1969. Það var ekki fyrr en árið 2002 sem þýska þingið
gaf út formlega afsökunarbeiðni til samkynhneigðra sem dæmdir voru í
tíð nasista.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.