Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Aðildarviðræður ESB við Serbíu haldi áfram

1. júní 2007

Mbl.is: Nú þegar eftirlýstur Bosníu-serbneskur
stríðsglæpamaður hefur verið handtekinn telur Olli Rehn, sem fer fyrir
stækkun Evrópusambandsins, að aðildarviðræður ESB við Serbíu geti
haldið áfram í júní. Rehn lýsti þessari skoðun sinni yfir eftir að hafa
rætt við forseta Serbíu, Boris Tadic, og Angelu Merkel, kanslara
Þýskalands, ríkisins sem fer nú með forsæti ESB.


ESB
frestaði aðildarviðræðum við Serbíu í fyrra vegna mistaka
ríkisstjórnarinnar við handtöku á stríðsglæpamanninum Radko Mladic og
annarra sakborninga, sem eftirlýstir eru af stríðsglæpadómstólnum í
Haag.


Í gær var svo Zravko Tolimir, fyrrverandi
hershöfðingi Bosníu-Serba og aðal aðstoðarmaður Mladic, sem ákærður er
fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu, handtekinn við landmæri
Bosníu og Serbíu.


„Framkvæmdastjórnin getur
haldið áfram samningaviðræðum ... á grundvelli þeirra staðreynda sem ég
hef kynnt fyrir ykkur“ sagði Rehn og vísaði þar til handtökunnar, en
einnig myndun nýrrar ríkisstjórnar í Serbíu.


Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.