Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Reykingabann á skemmtistöðum

30. maí 2007

Mbl.is: Kormákur Geirharðsson veitingamaður segir algerlega
óljóst hvort og hvernig verði hægt að framfylgja ákvæðum breyttra
tóbaksvarnarlaga, sem kveða á um bann við reykingum „innanhúss í
þjónusturými stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, svo sem á veitinga-
og skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram.“

Kormákur
segir að í Skotlandi hafi raunin orðið sú, að reykingabanni sem þessu
hafi fylgt samdráttur í tekjum veitinga- og skemmtistaða, og hafi það
leitt til þess að starfsfólki hafi verið sagt upp. Jafnvel geti svo
farið að tekjumissir leiði til þess að skemmtistaðir leggi upp laupana.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.