Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Putin sýnir klærnar

30. maí 2007

Vísir.is: Rússneski ríkissaksóknarinn hefur sent helsta stjórnarandstöðuflokki
landsins opinbera viðvörun vegna þess sem kallað er öfga-aðgerðir.
Þessar öfga-aðgerðir felast í því að Yablonko flokkurinn hjálpaði
þekktum pólitískum fréttaskýranda að gefa út bók þar sem Vladimir Putin
forseti er harðlega gagnrýndur. Putin hefur stuðning meirihluta
þingmanna og þingið samþykkti á síðasta ári nýja löggjöf gegn því sem
kremlverjar kalla öfgar.

Lögin
gera kleift að banna mönnum að gegna opinberum stöðum eða bjóða sig
fram í kosningum ef þeir hafa gerst sekir um öfgar. Stjórnvöldum var
látið eftir að skilgreina hvað öfgar væru í hverju máli fyrir sig.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.