Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Tony Blair til Alþjóðabankans?

29. maí 2007

Rúv.is: Bush forseti hyggst í þessari viku kynna arftaka Wolfowitz sem lætur af
embættinu vegna spillingarmáls. Sérskipuð rannsóknarnefnd komst að
þeirri niðurstöðu að Wolfowitz hefði brotið siðareglur bankans þegar
hann sá til þess að ástkona hans sem vann hjá bankanum fékk bæði stöðu-
og launahækkun.

Tony Snow, talsmaður Hvíta Hússins í Whasington,
sagði að forsetinn myndi kynna arftakann í vikunni. Snow vildi ekki í
samtali við fréttamenn í dag gefa upp hvort forsetinn hafi gert upp hug
sinn.

Talið hefur verið líklegt að Robert Zoellick verði fyrir
valinu. Hann er fyrrverandi viðskiptafulltrúi Bandaríkjastjórnar og
aðstoðarutanríkisráðherra. Sömuleiðis er talið að Robert Kimmitt,
aðstoðarviðskiptaráðherra Bandaríkjanna, komi til greina. Þá hefur nafn
Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, einnig verið nefnt í þessu
sambandi. Wolfowitz lætur af embætti 30. júní og Blair hættir sem
forsætisráðherra þremur dögum fyrr.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.