Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Friðsamleg lausn á ofbeldisfullri starfsemi

9. október 2006

Öðru hvoru heyrum við fréttir þar sem handrukkarar ræna fórnarlömbum, flytja þá á afskekta staði, skera af þeim líkamsparta, bora í hnéskeljarnar eða misþyrma þeim á einhvern annan hátt. Þetta er óhugnaður sem okkur hryllir öllum við. Fáir virðast hafa eitthver raunveruleg svör við handrukkurum. Handrukkarar eru frjálsir ferða sinna og geta afhafnast hvar sem þeir vilja. Að hindra þá í aðgerðum sínum er svo gott sem ómögulegt. Fórnarlömbum þeirra er svo hótað öllu illu ef þeir kjafta frá. Mörg fórnarlömb handrukkara hafa dregið kærur sínar til baka, og eru ástæðurnar fyrir því öllum augljósar. Frjálshyggjufélagið boðar þó lausn á þessu. Lausnin er þeim galla gerð að ef eitthver talar um hana þá fer fólk í uppnám, hneykslast á viðkomandi og krefst þess í nafni rétttrúnaðar að bannað verði að tala um þetta. Lausnin er lögleiðing allra fíkniefna.

Handrukkarar starfa í heimi ólöglegra fíkniefna. Fíkniefni er einfaldlega vara sem fólk vill kaupa, þó fólk vilji ekki horfa á það þannig. Ef einhver vill kaupa vöruna þá vill einhver annar selja hana. Þá myndast markaður. Frjáls markaður er nær ætíð friðsamlegur. Fíkniefni eru hins vegar ekki seld á frjálsum markaði. Ríkið bannar sölu fíkniefna og þvingar þannig markaðinn í undirheimana. Þar getur enginn leitað réttar síns. Ef aðili er svikinn í samningum, sem gerist oft í ólöglegri starfsemi, þá eru úrræði hans oftast ofbeldisfull. Þar koma handrukkarar til sögunnar. Þeir sjá um að samningar séu uppfylltir á mjög svo ógeðslegan hátt. Þetta tíðkast ekki á frjálsum markaði. Ef fíkniefni væru seld á frjálsum markaði þá væri ekki þörf fyrir ofbeldið.

Handrukkarar eru afleiðing þess að ríkið sé að skipta sér af persónulegu lífi einstaklinganna. Bæði handrukkarar og fíkniefnasalar lifa á því að fíkniefnasala sé ólögleg. Með því að lögleiða fíkniefni væri grundvellinum fyrir starfsemi þeirra kippt undan þeim. Stoppum ofbeldið, lögleiðum fíkniefni.

Unnþór Jónsson

af www.uf.is

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.