Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Viðskiptaráðherra ekki mótfallinn kynjakvóta

29. maí 2007

Vísir.is: Nýr viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, vill skoða þann
möguleika að beita lagasetningu til að fjölga konum í stjórnum
fyrirtækja. Til að ná stórstígum framförum, segir hann, þarf stundum
róttækar aðgerðir.

Rannsóknarsetur
vinnuréttar- og jafnréttismála á Bifröst kynnti í síðustu viku að konum
í stjórnum hundrað veltumestu fyrirtækja landsins hefði fækkað á milli
ára. Voru tólf prósent árið 2005 en eru nú átta prósent.

Þegar
Norðmenn settu kvaðir um að annað kynið hefði ekki minna en 40% af
stjórnum fyrirtækja vakti það mikla athygli. Valgerður Sverrisdóttir
sem gegndi stöðu viðskiptaráðherra í sjö ár, fram á síðasta ár, vildi
ekki beita lagasetningu til að auka hlut kvenna í stjórnum heldur fara
aðrar leiðir - eins og þá að hvetja fyrirtæki með því að birta lista
eins og þann sem Bifröst kynnti í síðustu viku. Sú leið hefur engu
skilað. Nýr viðskiptaráðherra er opinn fyrir lagasetningu á þessu sviði
og vill auk þess lögleiða jafnari kynjaskiptingu hjá hinu opinbera í
ráðum og nefndum.

Jóhanna Sigurðardóttir, nýr félagsmálaráðherra
sagði í gær að lagasetning til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja
væri neyðarúrræði en Björgvin er ekki fráhverfur norsku leiðinni.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.