Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Obama vill færa öllum sjúkratryggingar

29. maí 2007

Mbl.is: Barack Obama, sem sækist eftir útnefningu demókrata
sem forsetaefni flokksins,hefur lagt fram heilbrigðisáætlun sem útvega
öllum bandarískum borgurum sjúkratryggingar. Obama ákallar þó
stjórnvöld, viðskiptalíf og neytendur til að deila með sér kostnaðinum
við áætlunina. 45 milljónir Bandaríkjamanna eru án sjúkratrygginga.

Þessu
lýsti öldungadeildarþingmaðurinn frá Illinois-ríki yfir í ræðu sem hann
flutti í læknaháskólanum í Iowa. Obama segir að áætlun sín geti sparað
hinum venjulega neytenda 2,500 dollara eða 154,325 íslenskar krónur á
ári og færi öllum borgurum heilsugæslu.

Kostnaður
við áætlunina er talinn vera 50-65 milljarðar dollara eða 3.086- 4.012
milljarðar íslenskra króna á ári, sem yrði að mestu fjármagnaður með
því að hætta við aðgerðir til að minnka hátekjuskatt en það hefur verið
í bígerð hjá stjórn Georg W. Bush.



Margar bandarískar fjölskyldur gjaldþrota vegna heilbrigðiskerfisins


Obama sagði ennfremur í ræðu sinni að sífellt hærri kostnaður
almennings við heilsugæsluþjónustu í landinu hefði gert margar
bandarískar fjölskyldur gjaldþrota og hefði orðið til þess að margar
fjölskyldur væru án heilbrigðistrygginga.

Áætlun
Obama gerir meðal annars ráð fyrir því að allir atvinnurekendur þurfi
að taka þátt með einhverjum hætti í sjúkratryggingum launþega sinna, að
þeir sem hafi ekki efni á sjúkratryggingum geti fengið styrk til þess
með tilliti til innkomu sinnar og bannar tryggingafélögum að neita
fólki um sjúkratryggingar á grundvelli fyrri sjúkrasögu. Obama boðaði
að auki allsherjar yfirhalningu á heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna, eins
og auknum fjárútlátum í að auka tækniframfarir og betri stjórnunarhætti.

Hillary
Clinton, helsti andstæðingur Obama í slagnum um að verða frambjóðandi
demókrata fyrir forsetakosningarnar 2008, hefur lýst því yfir að
innleiða almennt sjúkratryggingakerfi en hefur ekki enn útlistað
hvernig sú áætlun hennar lítur út.

45 milljónir
Bandaríkjamanna eru ekki með sjúkratryggingu og sýna skoðanakannanir að
heilbrigðisþjónusta er mjög ofarlega í huga bandaríska kjósenda

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.