Fréttir
Írland: Annar stjórnarflokka beið afhroð
Rúv.is: Annar stjórnaflokkana á Írlandi þurrkaðist því sem næst út í
þingkosningum í landinu sem fram fóru á fimmtudag. Forsætisráðherrann
Bertie Ahern og flokkur hans Fianna Foil hafa fengið úthlutað 73
þingsætum en samstarfsaðilinn í ríkisstjórninni, Lýðræðisflokkurinn,
hefur aðeins fengið 1 sæti á þingi og því er ljóst að Fianna Fail þarf
annan flokk með sér til að geta myndað ríkisstjórn með 83 þingsæti.
Stjórnarandstöðuflokkanir
hafa fengið 71 þingsæti nú þegar eftir er að skipta 13 sætum milli
flokkanna. Græningjar hafa fengið 5 sæti og hefur leiðtogi þeirra sagt
að þeir gætu vel myndað ríkisstjórn með flokki forsætisráðherrans
Fianna Fail.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.