Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Íslendingar á tímamótum í öryggismálum

26. maí 2007

Mbl.is: Ísland stendur á tímamótum í öryggismálum, að mati
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra. „Brotthvarf
Bandaríkjahers voru söguleg tímamót, útrásin og viðskiptatengsl Íslands
um heim allan eru nýr veruleiki og sama á við um umhverfisvána, sem er
alþjóðamál. Nú skiptir öllu að skilgreina stöðu og rödd Íslands rétt og
skynsamlega og takast á við það verkefni af alvöru og vandvirkni,“
segir hún m.a. í viðtali sem birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

Sumir
bjuggust við að Ingibjörg Sólrún veldi annað ráðuneyti, þar sem mikil
ferðalög fylgja starfi utanríkisráðherra og því gæti reynst erfitt að
hafa stjórn á þingflokknum. En hún gefur lítið fyrir það. „Ég hef engar
sérstakar áhyggjur af þingflokknum. Ferðalög eru hluti af störfum allra
ráðherra í nútímanum og ég held að óttinn við þetta sé arfur gamals
tíma.“

Öryggismálin heyra undir
utanríkisráðuneytið, þó að forsætisráðherra hafi farið með fyrirsvarið
í varnarviðræðunum við Bandaríkin. „Þeim viðræðum er nú lokið,“ segir
Ingibjörg Sólrún. „Framganga Bandaríkjanna gagnvart Íslendingum var
óheppileg og af því verðum við að draga lærdóm. Allir vita að ég hef
ekki verið aðdáandi utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar en hún á sér
heldur ekki marga aðdáendur í Evrópu yfirleitt. En Bandaríkjastjórnir
koma og fara og sem utanríkisráðherra mun ég auðvitað alltaf kappkosta
að tryggja hagsmuni Íslands með góðu sambandi við þetta mikilvæga
viðskiptaland og granna í vestri.“

Hún segir
framboð Íslands í öryggisráðið í farvegi í ráðuneytinu, hún muni taka
stöðuna á því og ákveða framhaldið. Og hún hefur engin áform um fjölgun
sendiráða, þó að hún útiloki ekki breytingar. „Það er hlutverk
stjórnandans að huga að því hvar bæta megi starfsemina og þjónustuna og
þá um leið hvað megi leggja af sem þjónar ekki lengur mikilvægum
tilgangi.“

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.