Fréttir
Úkraína: Forsetinn í valdatafli?
Rúv.is: Viktor Jútsjenkó, forseti Úkraínu, gaf út tilskipun í dag þar sem hann
sagðist hafa tekið við yfirstjórn öryggissveita innanríkisráðuneytis
landsins. Umræddar sveitir hafa það hlutverk að halda uppi lögum og
reglu en tilheyra ekki úkraínska hernum.
Viktor Janúkovitsj,
forsætisráðherra Úkraínu, brást hart við yfirlýsingu forsetans. Hann
fordæmdi hana og sakaði forsetann um að gera illt verra varðandi
ástandið í landinu. Janúkovitsj sagði það ótækt að forsetinn tæki svona
ákvarðanir án þess að ráðfæra sig við ríkisstjórn landsins og sakaði
hann forsetann um að vera að undirbúa að beita valdi til að styrkja
stöðu sína.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.