Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Lyktarsýnum safnað af hugsanlegum mótmælendum

23. maí 2007

Rúv.is: Brigitte Zypries, dómsmálaráðherra Þýskalands, hefur lýst yfir
vanþóknun á þeim starfsaðferðum þýsku lögreglunnar að safna lyktarsýnum
af fólki sem talið er að hugsanlega taki þátt í mótmælum á
leiðtogafundi iðnveldanna 8 í næsta mánuði.

Nokkrir aðrir félagar
dómsmálaráðherrans í þýska Jafnaðarmannaflokknum hafa fordæmt þessar
aðferðir lögreglu. Einnig margir lögmenn og fórnarlömb gömlu
austur-þýsku lögreglunnar Stasi, en Stasi safnaði einnig lyktarsýnum af
fólki á sínum tíma.

Með söfnun þessara sýna telur lögregla að
með aðstoð hunda verði auðveldara að hafa uppi á forsprökkum
mótmælenda, jafnvel í hópi fólks. Þýski dómsmálaráðherrann sagði í
útvarpsviðtali í dag að hún hefði óbragði í munninum vegna þessa máls
og kvaðst skilja áhyggjur fólks af auknu eftirliti yfirvalda með
einstaklingum.

Wolfgang Schäuble, varnarmálaráðherra, varði
þessar aðgerðir lögreglu í dag og sagði markmiðið með þeim að tryggja
öryggi á leiðtogafundi iðnveldanna.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.