Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Kjarnorka: Íranar auka auðgun úrans

23. maí 2007

Mbl.is: Íranar hafa ekki einungis virt að vettugi kröfur öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna að hætta auðgun úrans heldur aukið starfsemi sína á þessu
sviði. Þetta segir í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar
sem birt var í dag. Í skýrslunni segir að Íranar noti yfir 1.300
skilvindur til að auðga úran og verið sé að prófa og smíða fleiri.
Frestur sem Írönum var gefinn til að hætta auðgun úrans rann út 24.
mars og var hann þá framlengdur um aðra tvo mánuði. Sá frestur rennur
út á morgun.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.