Skortur á starfsmönnum í verslunum

Mbl.is: Eftir að skólarnir hófu störf nú í haust hefur skortur á verslunarfólki verið mikill og víða ekki náðst að manna störfin. Ástandið hefur þó lagast eitthvað, að sögn viðmælanda Samtaka verslunar og þjónustu, eftir að gengið hefur verulega á sumarlaun námsmanna. Þeir hafa í auknu mæli óskað eftir að fá að hefja störf að nýju með náminu.
Eins og fram hefur komið á vef SVÞ þá hafa erlendir starfsmenn í auknum mæli verið ráðnir í verslunarstörf sem ekki krefjast mikillar tungumálakunnáttu. Verslunarkeðjur hafa t.d. tekið upp á því að auglýsa eftir fólki bæði á íslensku og pólsku í von um að ná til sín einhverjum af þeim fjölmörgu Pólverjum sem búa og starfa á Íslandi. Eins er ljóst að stjórnendur verslana eru farnir að huga að samskonar lausnum og byggingaiðnaðurinn í starfsmannamálum þ.e. að ráða til sín erlenda starfsmenn og hýsa þá, samkvæmt fréttapósti SVÞ.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.