Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Bændur funda fljótlega með nýjum landbúnaðarráðh.

23. maí 2007

Mbl.is: Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka
Íslands, segist hafa góðar væntingar til nýs landbúnaðarráðherra og
líst alls ekki illa á að málefni landbúnaðarins færist á hendur
Sjálfstæðisflokksins. Haraldur vill að bændur verði hafðir með í ráðum
hvað varðar endurskoðun verkefna og segir bændur fagna því að ekki
verði gengið lengra í innflutningi á landbúnaðarvörum en kveður á um í
alþjóðasamþykktum.

Í stjórnarsáttmálanum segir
að unnið verði að endurskoðun landbúnaðarkerfisins með það fyrir augum
að auka frelsi, bæta stöðu bænda og lækka verð til neytenda. Formaður
Bændasamtaka Íslands segist ekki hafa neinar áhyggjur yfir þessari
klausu. Hann beri ekki heldur neinn kvíða í brjósti yfir því að málefni
landbúnaðarins sameinist sjávarútveginum í einu ráðuneyti og minnir á
að það hafi áður gerst að landbúnaðurinn hafi verið í sameinuðu
ráðuneyti.

Haraldur sagði í samtali við mbl.is
að hann og forystumenn Bændasamtakanna vilji tryggja aðkomu sérfræðinga
í landbúnaði við endurskoðun á verkefnum

„Við
munum funda fljótlega með nýjum landbúnaðarráðherra og kynna okkar
áherslur og vilja sem og fræðast um hans hugmyndir," sagði Haraldur.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.