Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Jón Sigurðsson segir af sér formennsku

23. maí 2007

Mbl.is: Jón Sigurðsson hefur sagt af sér formennsku í
Framsóknarflokknum. Hann hefur sett kveðju til flokksmanna á vefsíðu
Framsóknarflokksins þar sem segir, að við núverandi aðstæður sé
óhjákvæmilegt að formaður Framsóknarflokksins hafi aðgang að ræðustól
Alþingis. Jón segir, að það sé lykill að kröftugu starfi og einingu
innan flokksins.

Jón segir eðlilegt að Guðni
Ágústsson, varaformaður, taki við formennsku flokksins en hann muni
áfram aðstoða við uppbyggingu og starf. Mun Guðni nú taka við sem
leiðtogi og aðaltalsmaður flokksins.

Í
tilkynningu sinni segir Jón að hann hafi ekki náð kjöri í
alþingiskosningunum 12. maí sl. og í kjölfarið tekið þá ákvörðun að
segja af sér formennsku í Framsóknarflokknum. Hann hafi undanfarna daga
kynnt þessa ákvörðun öðrum forystumönnum flokksins og trúnaðarmönnum í
kjördæmi sínu.

Jón sagði á blaðamannafundi í
morgun, að biðin hafi verið óhjákvæmileg og endanleg ákvörðun ekki
verið mótuð fyrr en síðdegis í gær.

Nýrri
ríkisstjórn lýsir Jón sem hægrisinnaðri nýfrjálshyggjustjórn, aðspurður
um það hvort hann vildi útskýra þess skilgreiningu frekar sagðist hann
ekki vilja það þar sem málefnasamningur stjórnarinnar hefði ekki verið
birtur, en sagðist hafa góðar ástæður fyrir þessum ummælum sínum. Guðni
Ágústsson tók undir þessi orð.

Jón sagðist ekki
líta svo á að fylgi flokksins hefði hrunið þótt það hafi minnkað frá
síðustu kosningum, fylgið hafi verið meira en kannanir sýndu mánuðina
fyrir kosningar og svipað og í borgarstjórnarkosningunum á síðasta ári.
Sagðist Jón frekar líta svo á að flokkurinn hefði haldið sjó. Hann
sagðist þó ekki gera lítið úr sinni ábyrgð á útkomu flokksins í
nýafstöðnum kosningum en að ljóst væri að fólk vildi breytingar eftir
langt og farsælt stjórnarsamstarf.

Jón sagðist
alls ekki sjá eftir þeirri ákvörðun sinni að taka við flokknum, honum
hafi þótt mjög gaman að koma að starfi flokksins eftir hlé þar sem hann
sinnti starfi þar sem honum gafst ekki kostur á stjórnmálaþáttöku.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.