„Vonast til að ný stjórn leiði deilumál til lykta"

Mbl.is: Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir
málefnasamning hinnar nýju ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar benda til þess að takist hafi að sameina það besta í
stefnu þessara flokka. Þá segist hún vonast til þess að hinni nýju
stjórn muni takist að leiða til lykta ýmis erfið deilumál í
þjóðfélaginu, m.a. vegna þess að stærri meirihluti sé að baki þessari
ríkisstjórn en þeirri síðustu og því komi stærri flokkar að
stefnumörkun hennar.
Stefanía segir jafnframt að
svo virðist sem frjálslyndar og framsæknar áherslur hafi orðið ofan á
innan hinna nýju stjórnarflokka og að þau öfl innan þessara tveggja
flokka hafi náð saman við myndun hinnar nýju stjórnar.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.