Ísafjörður: Tillögur um aðgerðir
Rúv.is: Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
leggur til þrenns konar aðgerðir vegna ástandsins sem skapast hefur á
Flateyri við það að útgerðarfyrirtækið Kambur hætti allri vinnslu þar.
Þær felast í að forkaupsréttar verði neytt á aflaheimildum, fólk verði
aðstoðað við að fá aðra vinnu og að reynt verði að koma vinnslu af stað
á Flateyri á ný.
Eins og fram hefur komið í fréttum mun Kambur
brátt hætta starfsemi á Flateyri. Þar vinna nú 120 manns og er þetta
langstærsti vinnuveitandinn á Flateyri. Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Ísafjarðar segir ljóst að takast verði á við þessar aðstæður og lagði
hann til þrenns konar aðgerðir í bæjarráði í dag. Ein þeirra felur í
sér að tryggt sé að sem mest af aflaheimildum verði eftir á svæðinu og
mun Ísafjarðarbær neyta forkaupsréttar ef hann er virkur. Önnur er sú
að setja upp teymishóp sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum. 3.
leiðin, og sú sem að mati Halldórs er fljótvirkust og tryggir flestum
vinnu, er að finna leiðir til að koma vinnslu af stað að nýju á
Flateyri.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.