Hlé á stjórnarmyndunarviðræðum
Rúv.is: Geir H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir formaður Samfylkingarinnar hafa nú gert hlé á
stjórnarmyndunarviðræðum það sem eftir er dagsins. Þau hafa setið á
fundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu frá því um kl 13:00 í dag og
rætt málefnasamning nýrrar ríkisstjórnar.
Glatt var yfir
formönnunum þegar þau gengu af fundi en þau vildu ekkert segja um það
hvenær þau héldu viðræðum yrði formlega lokið. Þau bentu þó bæði á að
þetta hlé væri ekki til marks um það að neinn ágreiningur væri kominn
upp, búið sé að leysa öll stærstu vandamálin og að þetta væri aðeins
stutt hlé á viðræðum. Að öðru leyti vildu þau ekki tjá sig um málið.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.