Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Óttast að Ingibjörg Sólrún sprengi ríkisstjórnina

20. maí 2007

Vísir.is: Morgunblaðinu er í dag hugleikin sú hætta að Ingibjörg Sólrún
Gísladótir geti búið til ágreining við Sjálfstæðisflokkinn á miðju
kjörtímabilinu og myndað vinstri stjórn. Blaðið varar við því að þetta
sé mesta hættan sem Geir H. Haarde standi frammi fyrir.

Samfylkingarfólk
kvartaði talsvert yfir meintri andúð Morgunblaðsins á Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur sem það taldi birtast í ritstjórnargreinum blaðsins
fyrir kosnignar - og fyrstu daga eftir.

Vart er ofsögum sagt
að Morgunblaðinu virðist lítt gefið um þær stjórnarmyndunarviðræður sem
nú standa yfir. Birtist sá tónn í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í
dag. Bréfahöfundur bendir á að blaðið hafi víst haft rétt fyrir sér um
meintan djúpstæðan klofning í Samfylkingunni en þessu hafa
Samfylkingarmenn hafnað einn af öðrum.

Segir Morgunblaðið;
"Það eru svo margir stjórnmálamenn í öðrum flokkum sem geta borið vitni
um að Morgunblaðið fer með rétt mál að þeim gæti ofboðið við að hlusta
á þetta tal samfylkingarmanna og komið fram á sjónarsviðið og skýrt frá
þeirri vitneskju sem þeir hafa um þessi mál."

Höfundur
Reykjavíkurbréfs verður síðan hugleikin sú gjörbreytta pólitíska
vígstaða Samfylkingarinnar, til hins betra með því að fá aðild að
ríkisstjórn. Í því sé fólgin mikil hætta fyrir sjálfstæðismenn þegar
horft sé fram á veg. Skýrir Morgunblaðið svo í hverju þessi mikla hætta
sé fólgin, sem sé í því að Ingibjörg Sólrún búi til ágreining við
Sjálfstæðisflokk á miðju kjörtímabili og rjúfi stjórnarsamstarfið.

Þá
geti hún auðveldlega myndað stjórn með Visntri Grænum og
Framsóknarflokki. Geir Haarde sitji þá eftir með sárt ennið. "Það er
búið að loka öðrum dyrum og ekki augljóst hvernig eigi að opna þær
aftur"- segir höfundur Reykjavíkurbréfs.

 

Í lok
pólitískrar greiningar Reykjavíkurbréfs vill Morgunblaðið líka að
Sjálfstæðisflokkurinn nái samkomulagi við Guðjón Arnar Kristjánsson og
Frjálslynda flokkinn og bendir á að Jón Magnússon, nýr þingmaður
frjálslyndra hafi verið í Sjálfstæðisflokkum frá 16 ára aldri.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.