Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Paul Watson hyggst stöðva hvalveiðar Íslendinga

20. maí 2007

Mbl.is: Paul Watson, leiðtogi Sea Shepherd, segist ekki
hlusta á Náttúruverndarsamtök Íslands eða aðra þá sem vilji koma í veg
fyrir aðgerðir samtakanna gegn hvalveiðum Íslendinga.

„Við
erum tilbúin til að hætta lífi okkar til að stöðva hvalveiðar
Íslendinga. Þetta er ekki léttúðug herferð. Við erum tilbúin til að
fara í fangelsi og gera eins mikið hark og mögulegt er," segir Watson
m.a. í svarbréfi til Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndasamtaka
Íslands en Ári skrifaði Watson bréf í nafni samtakanna í síðustu viku
og hvatti hann til að hætta við boðaðar aðgerðir við Ísland.

„Ef
áhöfn af mörgum þjóðernum verður í íslenskum fangelsum sé ég alþjóðlega
deilu í uppsiglingu - deilu sem mun afhjúpa ólöglegar hvalveiðar
Íslands og sem mun vekja upp mótmælaöldu um allan heim," segir Watson í
bréfinu, sem birt er á heimasíðu Sea Shepherd.

Watson
skammar Árna fyrir að vísa við vísindaveiða í bréfi sínu og segir hann
hljóma eins og talsmann þeirra glæpamanna, sem veiða hvali. Hann lýkur
bréfinu með því að segja að hvalirnir tilheyri ekki Íslendingum.
„Hvílíkur hroki, að ætla það að einhver hópur manna geti leikið Guð og
ráðið örlögum annarra vitiborinna lífsforma á þessar plánetu.
Íslendingar eiga ekkert með að ákveða hvort þeir vilja drepa eða ekki.
Myndir þú leyfa fjöldamorðingja að ákveða að hætta að eltast við
saklaus fórnarlömb? Ég held ekki."

Bréf Watson

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.