Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

S: Stillt upp á lista á NV-kjördæmi

8. október 2006

Uppstilling á framboðslista var samþykkt fyrir stundu á aðalfundi kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins sem haldinn er á Ísafirði. Kosið var milli tveggja kosta, 30% fundarmanna vildu prófkjör við uppröðun á lista en 70% kusu að fara uppstillingarleið.

Þingmenn flokksins í kjördæminu, Sturla Böðvarsson, Einar K. Guðfinnsson og Einar Oddur Kristjánsson lýstu því allir yfir á fundinum að þeir hyggðu á áframhaldandi þingmennsku. Í öðrum kjördæmum hafa Sjálfstæðismenn ákveðið að halda prófkjör, nema í norðausturkjördæmi þar sem ákvörðun verður tekin um næstu helgi.

www.ruv.is

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.