Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Kínverskur háskóli skyldar nýnema í þungunarpróf

18. maí 2007

Vísir.is: Skólastjórn tækniháskóla í vestur hluta Xinjiang héraðs í Kína segir
þungunarpróf sem nemendur eru látnir taka sem hluta af inntökuprófi
sýni samfélagslega ábyrgð. Tæplega 80 prósent nýnema heimavistarskólans
eru stúlkur á aldrinum 17 til 18 ára. Prófið hefur verið framkvæmt í
nokkur ár og þær sem reynast barnshafandi eru beðnar að hætta.

Þetta
er haft eftir nemendum skólans í Bejing News. Vitnað er í ónefndan
stjórnarmann skólans sem sagði að um væri að ræða einkaskóla.
Þungunarprófið væri hluti af almennu heilsufarsprófi. Hann sagði
skólann framkvæma prófið sem skyldu til nemendanna og fjölskyldna
þeirra.

Kvenkyns nýnemunum er hópað saman á gang og þar sem þeim
er gert að láta þvagpróf ganga til læknis. Ef óvenjulegar niðurstöður
koma í ljós ber lækninum að tilkynna það tafarlaust til skólans.

Sumar
stúlknanna sem hafa reynst ófrískar hafa sjálfar boðist til að hætta,
en aðrar eru beðnar um að fara. Eitthvað hefur verið um að stúlkur fái
“lánað” þvag hjá bekkjarsystrum sínum til að forðast prófið.

Aukin
hagsæld í Kína hefur haft þau áhrif að losnað hefur um ægivald yfir
persónulegum högum Kínverja. Fyrir einungis 20 árum þurfti leyfi
yfirvalda fyrir giftingum og barnsburðum.

Enn er þó forboðið að
fæða barn utan hjónabands í Kína. Stefnu yfirvalda um einungis eitt
barn á fjölskyldu er fylgt blint víða í fátækari samfélögum landsins.
Mannréttindahópar segja einnig töluvert um þvingaðar fóstureyðingar á
þeim svæðum.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.