Fréttir
Framsókn: Baugsstjórn að fæðast

Rúv.is: Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG,
segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafi
afsalað sér umboðið til stjórnarmyndunar. Hann segir ljóst að viðræður
sjálfstæðismanna og Samfylkingar séu mun lengra komnar en ætla mætti í
fyrstu. Jón Sigurðsson, formaður framsóknar, sakar sjálfstæðismenn um
margfeldni í viðræðum flokkanna tveggja og segir að nýja ríkisstjórnin
verði kölluð Baugsstjórn.

Það
kom ýmsum á óvart þegar forseti Íslands ákvað að ræða ekki við formenn
flokkanna til að kanna hug þeirra til stjórnarmyndunar. Hann ákvað þess
í stað að veita Geir umboðið eftir að Geir gekk á hans fund í morgun og
baðst lausnar. Steingrímur J. Sigfússon gagnrýnir ekki beinlínis þessa
ákvörðun forseta. Hann segir greinilegt að forsetinn hafi ekki talið
þörf á að ræða við Ingibjörgu Sólrúnu.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.