Stjórnarmyndunarviðræður ganga vel

Rúv.is: Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins,
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, héldu í
dag fyrsta formlega fundinn um myndun ríkisstjórnar þessara flokka. Þau
voru jákvæð að fundinum loknum. Farið var yfir vinnulag viðræðnanna og
málefni rædd. Formennirnir segja að ekkert sé farið að ræða skiptingu
ráðuneyta.
Geir H. Haarde fékk fyrir hádegið umboð frá forseta
Íslands til að mynda ríkisstjórn. Fyrsti fundur hans með Ingibjörgu
Sólrúnu hófst svo í ráðherrabústaðnum klukkan tvö.
Ingibjörg
Sólrún sagði við fréttamenn fyrir fundinn að hún væri bjartsýn á
viðræðurnar en sagið þetta um boð Vinstri grænna og Framsóknarmanna um
forsætisráðherrastól.
Reiknað er með að Geir og Ingibjörg fundi aftur á morgun.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.