Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun

Mbl.is: Þau Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, hafa ákveðið að
hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður flokkanna tveggja á morgun.
Geir mun ganga á fund forseta Íslands klukkan 11 á morgun og biðjast
lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína og fara fram á umboð til að hefja
viðræður við Samfylkinguna um myndun stjórnar.
Þau
Geir og Ingibjörg Sólrún hófu fund í Alþingishúsinu klukkan 16:30 og
stóð fundurinn í rúman hálftíma. Geir sagði m.a. við fréttamenn á
eftir, að hann hefði ákveðið að óska eftir viðræðum við Samfylkinguna
vegna þess að minna bæri á milli Sjálfstæðisflokksins og þess flokks en
Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.
Ingibjörg
Sólrún sagði að á fundinum hefðu þau Geir farið yfir stóru línurnar og
niðurstaðan verið sú, að líklegt væri að samstaða myndi nást um þau
mál, sem ágreiningur hefur verið um á milli flokkanna. Sagði hún
mikilvægt, að ríkisstjórn, sem mynduð verði, sé mynduð um málefni og
hægt sé að komast að samkomulagi um að takast á við þau stóru verkefni,
sem klárlega séu framundan í íslensku samfélagi.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.