Huginn - félag ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ
Fréttir

Hafa ekki áhuga á stríði við íbúa Álafosskvos

17. maí 2007

Mbl.is: Hilmar Konráðsson, forstjóri verktakafyrirtækisins
Magna, segir dapurlegt að óánægja fólks komi fram í skemmdarverkum á
eigum fyrirtækisins og segir að menn hjá fyrirtækinu hafi engan áhuga á
því að eiga í stríði við ibúa Álafosskvosarinnar. Hilmar segir þær
framkvæmdir sem nú standi yfir í kvosinni tengist ekki sjálfri
tengibrautinni heldur séu nauðsynlegar svo hægt sé að hefja uppbyggingu
á nýju hverfi.

Varmársamtökin sendu í dag frá
sér tilkynningu, þar sem sagði að verktakinn hafi í morgun byrjað að
leggja veg fyrir aftan gamla verksmiðjuhúsið meðfram Varmá í átt að
Álafossi. Segja samtökin að virðingarleysi gagnvart íbúum og umhverfi
virðist sér engin takmörk eiga. Engin tilkynning hafi borist frá
bæjaryfirvöldum um þessar fyrirætlanir til íbúa. Háværar vinnuvélar
hljómi nú á frídegi í eyrum langþreyttra íbúa þessa svæðis.

Hilmar
sagði, að þótt hætt verði við tengibrautina umdeildu þá breyti það ekki
því að leggja verði holræsi, rafmagn, vatn og annað og engin önnur leið
sé fær en að leggja lagnirnar um kvosina. Þá segir hann að m.a. sé
verið að endurnýja skólplagnir í Álafosskvosinni.

Hilmar
segir ekki rétt, að verið sé að leggja veg en óumflýjanlegt sé að
leggja slóða við framkvæmdirnar til að koma efni að og frá. Venjan sé
svo að verksummerki séu fjarlægð með því að taka efni og fylla yfir með
mold og sá svo grasi.

Um skemmdarverkin sem
unnin voru á vinnuvélum fyrirtækisins aðfaranótt miðvikudag segir
Hilmar að íbúar í Brekkulandi hafi séð til mannaferða um fjögur
umræddan morgun. Hefur fyrirtækið heitið 200.000 krónum þeim sem veitt
getur upplýsingar um þá sem frömdu skemmdarverkin.

Fréttabréf

Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.