Alsæla er ,,hreint frábær" ?

Breska ríkisútvarpið BBC hefur tekið upp varnir fyrir einn af þekktari sjónvarpsþáttastjórnendum sínum, Graham Norton, sem sagði í viðtali við kvennatímaritið Marie Claire að hann hefði prófað ,,helling af fíkniefnum" og að eiturlyfið alsæla væri ,,hreint frábært".
Norton hefur séð um fjölda sjónvarpsþátta, nú síðast Dance Fever. Ummæli hans um eiturlyf hafa vakið hörð viðbrögð baráttuhópa gegn fíkniefnum en BBC segir að hann hafi verið að beina orðum sínum að fullorðnu fólki. Þetta hefði engin áhrif á hæfni hans til að stjórna sjónvarpsþáttum.
Norton var áður starfsmaður sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4. Norton segir í Marie Claire að hann hafi prófað alsælu fyrir mörgum árum síðan og það hafi verið ótrúleg lífsreynsla og virkilega skemmtileg. „Ég hef prófað helling af fíkniefnum en mér þætti rosalega svekkjandi ef slúðurblöðin gómuðu mig við það þar sem ég neyti þeirra svo sjaldan," segir Norton.
Martin Barnes, talsmaður baráttusamtaka gegn eiturlyfjum, DrugScope, segir vitað mál að fólk prófi eiturlyf sér til skemmtunar en afleiðingarnar geti verið skelfilegar. Það verði þekktir einstaklingar að hafa í huga þegar þeir ræða um eiturlyf.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.