Mestu skiptir að úrslitin voru sterk fyrir XD

Mbl.is: Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á
heimasíðu sinni, að hann hafi ekki fengið neina staðfestingu á því
hvort þær fréttir séu réttar, að allt að 20% kjósenda í
Reykjavíkurkjördæmi suður hafi strikað yfir nafn hans. En mestu máli
skipti, að úrslit kosninganna séu sterk fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
„Í
fréttum hafa birst frásagnir af því, að í mínu kjördæmi Reykjavík suður
hafi allt að 20% kjósenda strikað út nafn á lista Sjálfstæðisflokksins
og er getum leitt að því, að þar hafi menn farið að tilmælum Jóhannesar
Jónssonar í Bónus í auglýsingu í öllum dagblöðum daginn fyrir kjördag
um að strika yfir nafn mitt. Ég hef ekki fengið neina staðfestingu á
því, hvað rétt er í þessum tölum.
Útstrikanir
eru hluti leikreglna okkar en hitt er óvenjulegt, að opinberar
áskoranir birtist með hvatningu um þær. Hér er um einn anga
Baugsmálsins að ræða. Málið var komið af stað, þegar ég varð ráðherra
og hefur verið á döfinni allt kjörtímabilið. Frá upphafi hefur verið
leitast við að setja það í pólitískt samhengi tengt
Sjálfstæðisflokknum. Spurning var, hvort og þá hvernig því yrði beint
gegn flokknum í kosningabaráttunni að þessu sinni.
Í
auglýsingunni lagði Jóhannes í Bónus spjót sitt gegn mér persónulega en
hvatti til stuðnings við flokkinn. Í kosningabaráttunni taldi ég mestu
skipta, að Sjálfstæðisflokkurinn kæmi sterkur frá kosningunum, sem
gerðist. Hafi ómálefnaleg og ósmekkleg persónuleg árás á mig stuðlað að
því, tel ég meginniðurstöðuna og styrk Sjálfstæðisflokksins skipta
mestu," segir Björn.
Hægri.is
Fréttabréf
Fáðu tilkynningar um atburði og uppákomur og fréttir af starfi félagsins.